Úlfarsfell skafkort
Vara væntanleg í nóvember 2026.
Úlfarsfell, skafkort (A3) er fallegt og hvetjandi skafkort fyrir alla sem elska Úlfarsfell. Á veggspjaldinu eru reitir sem hægt er að skafa af til að telja fjölda ferða.
👉 Settu þér markmið um fjölda ferða á árinu, innan ákveðins tíma eða í tilefni af einhverju og sjáðu fjöldan teiknast upp ljóslifandi fyrir framan þig. Ætlar þú eina, 10, 25 eða 52 ferðir í ár? Ef þú ætlar fleiri getur þú merkt aftur við hvern reit og haldið áfram að telja.
Hvað er ein ferð á Úlfarsfell? Úlfarsfell er ótrúlega fjölbreytt. Bæði eru margar leiðir upp og niður og allt um hring, tveir toppar og endalaust hægt að leika sér í Úlfarsfellshlíðum. Það er þitt að ákveða hvað þú telur sem eina ferð.
Veggspjaldið er handteiknað og hannað af listakonunum Amy Alice Riches og Ragnheiði Ástu Valgeirsdóttur hjá ARRA hönnunarstúdíó, með natni og ástríðu fyrir útivist og fagurfræði.
Fullkomin gjöf fyrir hlaupara, göngufólk náttúruunnendur og alla sem elska að setja sér ný markmið!