Skilmálar
Pantanir
Hlaupadagskra.is tekur við pöntunum þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðsla
Hægt er að greiða með kreditkorti eða íslensku debetkorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Teya, Hlaupadagskra.is fær því aldrei kortaupplýsingar kaupenda.
Sendingarmáti
Hægt er að fá pantanir sendar með Dropp eða sækja þær í verslun HTL.is Hátúni. Það tekur alla jafna allt að 3 virka daga að afgreiða pöntunina. Sé varan send með Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Póstsendingargjald er 990 kr. fyrir almennar pantanir
Verð
Auglýst verð er heildarverð vöru. Sendingakostnaður bætist við í greiðsluferli.
Vöruskil
Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Tilkynna skal vöruskil með tölvupósti á oskar@hlaupadagskra.is. Boðið er upp á endurgreiðslu eða vöruskipti. Endurgreiðsla er gerð í sama formi og greitt var fyrir vöruna. Athugið að kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Hlaupdagskra.is. Heimsendingargjald fæst ekki endurgreitt.
Ef liðnir eru meira en 14 dagar frá kaupum þá endurgreiðum við aldrei skilavöru, þá er aðeins hægt að skipta eða fá inneignarnótu.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða gallaða vöru afhenta. Sé vara endursend verður hún að berast á heimilisfang Hlaupadagskra.is.
Hafi kaupandi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta ber honum að upplýsa Hlaupadagskra.is um það við fyrsta tækifæri.
Fyrirvari
Hlaupadagskra.is áskilur sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og myndbrengl. Hlaupadagskra.is áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun komi í ljós að varan hafi verið vitlaust verðmerkt eða uppseld. Í þeim tilfellum fær viðskiptavinur endurgreitt.
Persónuupplýsingar
Sjá friðhelgisstefnu Shopify.
Lög og varnarþing
Um viðskipti við Hlaupadagskra.is, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum, gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Hlaupadagskra.is. og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.