Skip to product information
Hlaupaferð til Sviss 2027 með Hlaupadagskra.is

Hlaupaferð til Sviss 2027 með Hlaupadagskra.is

65,000 kr
Veldu tegund þátttakanda

Hlaupaferð til Kandersteg í Svissnesku Ölpunum með hlaupadagskra.is dagana 9. - 14 júní 2027. Komdu með og upplifðu Svissnesku alpana eins og þeir gerast bestir. Hlauparar og göngufólk sem ferðafélagar velkomnir.

Ferð er staðfest. Skráning lokar 9.ágúst.

Ferðaupplýsingar

  • Lengd: 5 nætur, 6 dagar
  • Dagsetning: 9. - 14. júní 2027
  • Hópastærð: 10 -24 hlauparar + allt að 15 göngufélagar
  • Fararstjórar: Óskar Þór og Tómas G
  • Verð: 230.000.- kr.
  • Staðfestingargjald 65.000.-  (ekki endurgreiðanlegt eftir að ferð hefur verið staðfest. Lágmarks þátttaka: 10 hlauparar og/göngufólk. Nafnabreyting er heimil eftir staðfestingu ferðar).

Kandersteg - Svissnesku Alparnir

Kandersteg er fjallaþorp á Bernese Oberland svæðinu í Sviss í um 1200m hæð. Kandersteg er sannkölluð útivistarparadís þar sem hægt að ganga ótal leiðir um stórbrotið alpaumhverfi.
Í þessari náttúruperlu Sviss er meðal annars hægt að heimsækja hið undurfagra Oeschinensee, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, og heimsækja Blausee vatnið. Svæðið er þekkt fyrir ríka sögu í fjallgöngum og alpaklifri sem gaman er að kynna sér og upplifa um leið töfrandi fegurð svissnesku Alpanna.

Þessa ferð er einnig hægt að aðlaga að minni eða stærri hópum, svo sem hlaupahópum.

Gisting (hotel-victoria.ch)

Gist verður í tvýbýli (double-room) á glæsilegu alpahóteli í Kandersteg allar næturnar og er morgunmatur innifalinn. Hotel Victoria  Kandersteg  er virðulegt hótel í miðju bæjarins með innilaug, sauna og spa ásamt veitingarstaðar og bars. Morgunverðarhlaðborð er innifalið.

Mögulegt er að uppfæra tvíbýli upp í  svítu (suite). Hægt er að athuga með einstaklingsherbergi ef þörf er á. Einnig er möguleiki á einbýli og 4-6 manna orlofsíbúðum.

Fjallasalurinn er alveg magnaður og verður ferðin ógleymanlegt ævintýri. Áherslan verður á að njóta og verja deginum saman í grænni náttúru og fallegu útsýni við himinblá vötn og vegi.

Innifalið í verði:

  • Gisting í tvíbýli
  • Innilaug, sauna og spa.
  • Veitingastaður og bar.
  • Morgunverðarhlaðborð innifalið.

Hlaupadagar

  • Þrír hlaupadagar með áherslu á að njóta en ekki þjóta, einn frídagur með valkvæðu fjallahlaupi
  • Dagur 1: Oeschinensee (12km)
  • Dagur 2: Sonnbühel og Gasterntal (17km)
  • Dagur 4: Frídagur (valkvæður morguntúr í Doldenhornhütte 12km)
  • Dagur 5: Alpenshelehubel (15km) + Blausee heimsókn
  • Samtals um 44 km, hægt að stytta eða lengja alla hlaupadaga.

Innifalið í verði

  • Gisting í 5 nætur í double room með morgunmat á frábæru Alpa sveitahóteli
  • 3 hlaupadagar að meðaltali 4-6 tímar og auka hlaup í boði á frídegi
  • Sameiginlegur lokakvöldverður
  • Fararstjórn
  • Miði í 3 kláfa og Blausee aðgangsmiði
  • Strætófargjald frá Blausee á Hótel
  • Undirbúningsfundur með fararstjórum
  • Handbók um Kandersteg og nálæg svæði
  • 360° myndband af ferðinni á Youtube

Ekki innifalið í verði

  • Flug til Sviss
  • Ferðir til og frá flugvelli til Kandersteg
  • Bílastæði við Hótel
  • Máltíðir sem ekki eru taldar upp
  • Afþreying á hvíldardegi
  • Alpatrygging björgunarsveita (https://www.rega.ch/ mjög æskilegt en ekki skylda)
  • eSim eða gagnamagn fyrir snjalltæki (Sviss er ekki í reiki samningi EU)
  • Ferðakostnaður annar en tekinn fram
  • Önnur þjónusta sem ekki er tekin fram

Fyrir hverja er ferðin?
Ferðin er miðlungskrefjandi og þarf fólk að vera í góðri þjálfun til að þola að vera lengi á fótum nokkra daga í röð. Æskilegar æfingar eru fell og fjöll svo sem Úlfarsfell, Esja því fæstir stígar í Ölpunum geta talist flatir.

Í ferðinni eru fjórir hlaupadagar og einn frjáls dagur. Hlaupaleiðirnar eru frá 10-20km með allt að 1.100m hækkun. 

Þau sem það kjósa geta sleppt hlaupadegi og notið þess sem Kandersteg hefur upp á að bjóða. Eins verður einn frjáls dagur sem fólki gefst kostur á að verja að vild, m.a. er hægt að leigja sér hjól eða fara í göngutúr á eigin vegum, skella sér í Rundbahn og ViaFerrata eða taka lest til nálægra borga og bæja eins og Spiez, Interlagen eða Bern.

All skipulag ferðarinnar miðast út frá að hver dagur hefjist og endi við hótelið. 

Þrír hlaupadagar hefjast á því að farið er upp í fjallasal með kláfi. Þar er hlaupinn hringur og síðan niður í bæinn. Mögulegt er að stytta dagleiðirnar með því að taka kláfinn niður aftur.  

Ferðatilhögun
Ferðin hefst í Kandersteg 9.júní og er fyrsti hlaupadagur 10.júní. 
Algengast er að flogið sé til Zurich t.d. 9. júní. Aðrir nálægir flugvellir eru Basel, Genf og Milano. Almenningssamgöngur og lestar eru góðar. Best er að kaupa lestarmiða með SBB og halda utan um miðana í appi.

Ferðafélagar sem ekki hlaupa velkomnir
Kandersteg er útivistaparadís Velkomið er að bóka í ferðina ferðafélaga sem ekki ætlar að hlaupa. Göngufélagar fá skipulaga gönguleið fyrir hvern dag. Þeir koma með í kláfinn að morgni og farið í eigin göngutúra eða afþreyingu. Þeir fara svo aftur niður í kláfnum þegar þeir vilja. Slíkir ferðafélgar fá ítarlegar leiðbeiningar um gönguleiðir og afþreyingu frá fararstjórum fyrir hvern dag. Sama gjald er fyrir alla í ferðina. Ef fleiri en 6 göngugarpar skrá sig í ferðina verður auka göngufararstjóra bætt við fararteymið.

Farastjórn

Óskar Þór Þráinsson, upplýsingafræðingur, er vanur fjallahlaupari og skáti sem hefur mikla reynslu af hlaupum og hefur á síðustu árin dvalið löngum stundum á fjallastígum í Sviss, meðal annars með Skátahópum í skipulögðum ferðum göngum og hlaupum. Nú langar hann að kynna þetta skemmtilega leiksvæði fyrir íslenskum fjallahlaupurum.

Tómas G. Gíslason, líffræðingur, er vanur fjallahlaupari og fyrrverandi landsliðsmaður í áströlskum fótbolta. Hann hefur mikla reynslu af fjallabrölti og næmt auga fyrir náttúrunni enda lærður náttúrulífsljósmyndari.

Saman hafa þeir Óskar og Tómas brasað ýmislegt utanvega og innan og tryggja að allir í ferðinni upplifi öryggi og hafi gaman. Þeir fóru þessa ferð með hlaupahóp 2026. 

- - - - 

Fyrirspurnir varðandi ferðina er hægt að senda á oskar@hlaupadagskra.is

Ferðin fellur undir lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Tilskilin leyfi og tryggingar eiga við.

You may also like