Vinur Hlaupadagskrár: Einstaklingsáskrift
Hlaupadagskrá.is er sjálfstætt framtak sem heldur utan um íslenska hlaupadagskrá, safnar upplýsingum um hlaup og hlaupaleiðir, tekur upp 360° myndbönd og vinnur að ýmsum hugmyndum sem gætu nýst hlaupurum og hlaupahöldurum.
Allt þetta kostar tíma, vinnu, tækni og óhóflegt magn af kaffi.
Ef þér finnst Hlaupadagskra.is vera gagnlegt framtak geturðu lagt þitt af mörkum með því að gerast Vinur Hlaupadagskrár fyrir 12.000 kr. á ári.
Hvað er innifalið?
Eins og staðan er í dag? Nánast ekki neitt! Allt sem við bjóðum er frítt!
En þú færð að minnsta kosti:
- Ævarandi þakkir frá okkur sem stöndum að Hlaupadagskrá.is.
- Forgang í prufuhópa ef og þegar við förum af stað með nýja einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir hlaupara.
- Tillögurétt að nýjum eiginleikum, þjónustu og öðrum hugmyndum sem okkur gæti dottið í hug að framkvæma.
- Tækifæri til að hafa áhrif á áframhaldandi þróun Hlaupadagskrár.
-
Góða samvisku yfir því að styðja okkur í að styðja við íslenskt hlaupasamfélag.
Hvað er fram undan?
Við erum með ýmsar hugmyndir í vinnslu. Persónuleg hlauptól, betri hlaupaleiðasýn fyrir keppnishlaup, kortavirkni, fleiri hlaupaleiðir, ný verkfæri fyrir hlaupara og ýmislegt fleira sem við viljum ekki segja frá strax.
Sumt af þessu verður vonandi að veruleika. Annað endar kannski bara á hugmyndalistanum.
Þeir sem hafa keypt einstaklingsáskrift fá forgang að þátttöku í prufuhópum þegar og ef ný þjónusta fer í loftið. Við stefnum á að alltaf verði frítt að nota hlaupdagagskra.is og skoða allt um hlaupaviðburði ársins. Ef við ákveðum einhvern tíman að setja einstaklings virkni á bak við áskriftarvegg þá færð þú þú aðganginn og að vita af því fyrst.
Má ég styrkja meira?
Já, endilega! Það má meira að segja kaupa fleiri en eina áskrift. Við lofum að þakka þér í hvert skipti.
Smá fyrirvari
Þetta er stuðningsáskrift en ekki kaup á tiltekinni þjónustu. Engin sérstök fríðindi eða þjónusta eru tryggð og framtíðarhugmyndir eru háðar því að þær verði að veruleika. Athugaðu að áskrift endurnýjast ekki sjálfkrafa, en við munum klárlega minna þig á þegar áskriftin rennur út.
Takk fyrir að styðja Hlaupadagskrá.is. Við höldum áfram að hlaupa á meðan þið nennið að hafa okkur!