Skip to product information
Hlaupaferð til Sviss 2026 með Hlaupadagskra.is
65.000 kr
Hlaupaferð til Kandersteg í Svissnesku Ölpunum með hlaupadagskra.is dagana 3. - 9. september 2026. Komdu með og upplifðu Svissnesku alpana eins og þeir gerast bestir.
Ferð er staðfest. 8 laus pláss.
Sjá allt um ferðina hér: https://www.hlaupadagskra.is/hlaupaferd
Ferðaupplýsingar
- Lengd: 6 nætur, 7 dagar
- Dagsetning: 3. - 9. sept 2026
- Hópastærð: 10 -24 manns
- Fararstjórar: Óskar Þór og Tómas G
- Verð: 240.000.- kr.
- Staðfestingargjald 65.000.- (ekki endurgreiðanlegt nú eftir að ferðin er staðfest. Nafnabreyting er heimil eftir staðfestingu ferðar).
Hlaupadagar
- Fjórir hlaupadagar með áherslu á að njóta en ekki þjóta, einn frídagur
- Dagur 1: Oeschinensee (12km)
- Dagur 2: Sonnbühel og Gasterntal (17km)
- Dagur 3: Blausee (9km)
- Dagur 4: Frídagur
- Dagur 5: Alpenshelehubel (15km)
- Samtals um 54 km, hægt að stytta eða lengja.
Innifalið í verði
- Gisting í 6 nætur í double room með morgunmat á 3 stjörnu alpa hóteli
- 4 hlaupadagar að meðaltali 4-6 tímar
- Sameiginlegur lokakvöldverður
- Fararstjórn
- Miði í 3 kláfa og Blausee aðgangsmiði
- Strætófargjald frá Blausee á Hótel
- Undirbúningsfundur með fararstjórum
- Handbók um Kandersteg og nálæg svæði
- 360° myndband af ferðinni á Youtube
Ekki innifalið í verði
- Flug til Sviss
- Ferðir til og frá flugvelli til Kandersteg
- Bílastæði við Hótel
- Máltíðir sem ekki eru taldar upp
- Afþreying á hvíldardegi
- Alpatrygging björgunarsveita (https://www.rega.ch/ mjög æskilegt en ekki skylda)
- eSim eða gagnamagn fyrir snjalltæki (Sviss er ekki í reiki samningi EU)
- Ferðakostnaður annar en tekinn fram
- Önnur þjónusta sem ekki er tekin fram
Fyrir þá allra hörðustu má einnig benda á Wildstrubel, UTMB hlaupið, er haldið 11.-13.sept á þessum slóðum.