Sviss með Hlaupadagskrá 2027

Hlaupið í svissnesku Ölpunum við Kandersteg

Hlaupaferð til Sviss 2027

Kandersteg í svissnesku Ölpunum · 9.–14. júní 2027 · Hlauparar og göngugarpar velkomin

Dagsetning9.–14. júní 2027
Lengd5 nætur,
6 dagar
Hlaupadagar3 +
1 (val á frídegi)
Vegalengd á dag10–17 km 
GistingAlpahótel
með spa og sundlaug
Verð225.000 kr.

Skráning hlaupara Skráning göngugarpa

Staðfestingargjald 65.000 kr. · Ferðin er staðfest þegar 10 þátttakendur hafa skráð sig · Hámark 24 hlauparar + 15 göngugarpar

-------------   Efnisyfirlit og kaflar -------------

Alparnir eins og þeir gerast bestir.  

Markmiðið ferðarinnar er njóta en ekki þjóta, að upplifa fjöllin, dalina, vötnin, fjallaskálana og stemninguna í Sviss, ekki að safna kílómetrum eða hæðametrum.

Kandersteg er dásamlegt svissneskt fjallaþorp í um 1.200 m hæð á Bernese Oberland svæðinu. Í kringum þorpið liggur þétt net merktra stíga, fjalladala, kláfa og fjallaskála. Meðal áfangastaða í ferðinni eru hið undurfagra Oeschinensee vatn, sem tilheyrir UNESCO-heimsminjasvæðinu Jungfrau–Aletsch, villti jökuldalurinn Gasterntal og hið kristalbláa Blausee.

Við gistum allan tímann á sama hótelinu og hver dagur hefst og endar þar. Á hlaupadögum förum við upp með kláfum, hlaupum um fallega fjallasali og svo aftur niður í bæinn á hótelið. Alltaf er hægt að stytta daginn og taka kláfinn niður í stað niðurhlaups. Einnig er mögulegt að  bæta við leiðina fyrir þá sem vilja fá aukna kílómetra eða hækkun í fæturna í samræmi við æfingaplön sumarsins.

Júní er yndislegur tími í Ölpunum: vorið í hámerki með grænar hlíðar, blómin í blóma og fossarnir í fullu fjöri áður en hitinn og ferðamannastraumurinn tekur yfir svissnesku dalina í júlí og ágúst.

Kandersteg séð ofan frá

Hótelið: Belle Époque Hotel Victoria

Eftir langan dag á fjallastígum bíður sundlaugin, saunan og barinn í nokkurra skrefa fjarlægð.

Hotel Victoria er virðulegt og glæsilegt alpahótel frá Belle Époque nostalgíu tímanum í hjarta Kandersteg, steinsnar frá lestarstöðinni, verslunum og veitingastöðum þorpsins. Hótelið er heimili okkar alla ferðina.

Hotel Victoria Kandersteg
Morgunverðar-hlaðborð
Innisundlaug
Spa: sauna, infrarauður klefi og kalt bað
Veitingastaður og bar
Rafhjólaleiga á hótelinu
Bílakjallari (daggjald)

Verð miðast við að gist sé í tvíbýli. Einnig er mögulegt að fá einbýli, uppfæra í svítu eða gista í 4–6 manna orlofsíbúð gegn viðbótargjaldi.  Sendið fyrirspurn ef áhugi er á slíku. Gestakort svæðisins (Guest Card) fylgir gistingunni sem veitir afslætti og tilboð af afþreyingu á svæðinu. hotel-victoria.ch

Dagskrá ferðarinnar

Hlaupadagar eru þrír og vegalengd um 44km auk valkvæðs fjalla-morung-hlaups á frídegi. Allar leiðir má stytta eða lengja. Með fyrirvara um breytingar. Fararstjórar aðlaga leiðir að veðri og aðstæðum og eru alltaf tilbúnir að bregast við aðstæðum.

Miðvikudagur 9. júní

Komudagur

Þátttakendur koma sér til Kandersteg og innrita sig á Hotel Victoria. Lestarferðin frá Zürich-flugvelli tekur rúmar tvær til þrjár klukkustundir. Akstur frá flugvell rúmlega tvær klukkustundir fyrir þá sem kjósa að sameinast um bílaleigubíl.

Oeschinensee
Fimmtudagur 10. júní · Hlaupadagur 1

Oeschinensee

12 km↑ 380 m↓ 800 m

Skokkað frá hóteli að kláfi (um 700 m). Hlaupið upp á efri brúnina ofan við vatnið, sem liggur í 1.578 m hæð undir Blüemlisalp, umlukið klettum, jöklum og fossum. Síðan niður að vatninu þar sem við stoppum í um klukkutíma við vatnið og í fjallaskálum þar sem hægt er að vesla sér veitingar. Það ertilvalið að hafa með sér sundföt og dýfa sér í ferskt fjallavatnið til að kæla sig niður, eða a.m.k. að bleyta þreyttar tær Að lokum hlaupið niður dalinn heim á hótel.

Sunnbüel og Gasterntal
Föstudagur 11. júní · Hlaupadagur 2

Sunnbüel og Gasterntal + Blausee

17 km↑ 380 m↓ 900 mHægt að stytta í 10 km

Kláfurinn flytur okkur upp á Sunnbüel í tæplega 2.000 m hæð, í opið fjallalandslag í átt að Gemmipass. Hlaupinn er hringur upp að fjallahótelinu Schwarenbach þar sem stoppað er í kaffi og með því. Þaðan liggur ógnarfagur fjallastígur niður í villta jökuldalinn Gasterntal og áfram heim til Kandersteg. Eftir hlaupið og sturtu förum við saman með strætó að hinu tæra, blágræna Blausee og njótum það sem eftir lifir dagsins þar (valkvætt en aðgangseyrir er innifalinn).

Frídagur í Kandersteg
Laugardagur 12. júní · Frídagur

Frjáls dagur Valkvætt: Doldenhornhütte

Valkvæður morguntúr ~12 km

Fyrir þau sem vilja meiri hreyfingu er boðið upp á morgunhlaup fyrir morgunmat upp í fjallaskálann Doldenhornhütte þar sem útsýni er yfir Oecenensee og Kandersteg frá öðru sjónarhorni. Þessi auka túr er snemma til að nægur tími sé til skoðunarferða. Frídagurinn þarf alls ekki að verða æfingadagur.  Það er fullkomlega afsakanlegt að sofa út og nýta sundlaugina og saununa.
Tillögur að afþreyingu á frídegi: Ferðast til Bern, fljóta niður Aare-ána og skoða Birnina og miðaldabæinn. Sigla á milli Thun og Spiez, skoða Adelboden eða prófa svifvængjur eða gljúfraklifur í Interlaken. Góðar lestarsamgöngur eru frá Kandersteg til þessara bæja. Einnig er mögulegt að leigja sér rafmagnsfjallagjól og kanna umhverfið á eigin vegum.

Alpschelehubel
Sunnudagur 13. júní · Hlaupadagur 3

Alpschelehubel Lokakvöldverður

15 km↑ 589 m↓ ~1.000 mHæsti punktur 2.200 m

Skokkað að kláfi frá hóteli (um 1,5 km). Falleg hlaupaleið um fjallasali með beljum á beit þar sem tíminn hefur staðið kyrr í margar aldir. Leiðin liggur svo upp á hæsta punkt ferðarinnar við Alpschelehubel í 2.200 m hæð þar sem tindurinn næfir yfir dalinn. Síðan tekur við langt og ljúft niðurhlaup eftir dalnum með góðum útsýnisstoppum á leiðinni og einu skálastippi þangað til við náum niður í Kandersteg með stuttri viðkomu í Höh þar sem falleg yfirsýn er yfir þorpið. Ferðinni lýkur með sameiginlegum lokakvöldverði á hótelinu um kvöldið.

Mánudagur 14. júní

Brottfarardagur

Morgunverður og heimferð. Lestin fer frá miðju þorpinu og tengist beint við flugvellina en einnig er hægt að halda á vit ævintýranna hvert sem er í Evrópu.

Fyrir hverja er ferðin?

Ferðin er miðlungskrefjandi og hentar þeim sem eru í góðri þjálfun og þola að vera lengi á fótum nokkra daga í röð. Hlaupadagarnir taka að jafnaði 4–6 tíma með stoppum, því hér er áherslan á að njóta en ekki þjóta.

Fæstir stígar í Ölpunum eru flatir og niðurhlaupin eru löng, svo góður undirbúningur er fell og fjöll á borð við Úlfarsfell og Esju, helst með áherslu á niðurleiðina.

Enginn þarf að hlaupa alla dagana. Hægt er að stytta leiðir með kláfnum eða sleppa degi og njóta Kandersteg á eigin forsendum.

Í stuttu máli

  • Hlaupaleiðir 10–17 km
  • Allt að ~600 m hækkun og ~1.000 m lækkun á dag
  • Aðallega vel merktir gulir stígar, rauðir fjallastígar að hluta
  • Hópurinn heldur saman, þægilegur hraði og ekkert stress
  • Hver dagur hefst og endar á hótelinu
  • Stytting eða lenging möguleg alla daga

Göngugarpar og ferðafélagar velkomnir

Hleypur makinn, vinurinn eða vinkonan ekki? Kandersteg er ekki síður paradís fyrir göngugarpa. Göngugarpar bóka sig sérstaklega í ferðina og fá:

  • Skipulagða gönguleið fyrir hvern dag, með ítarlegum leiðbeiningum frá fararstjórum
  • Ferð með hlaupahópnum upp í kláfinn á morgnana en niður þegar þeim hentar
  • Sömu gistingu, kláfamiða, lokakvöldverð og allt annað innifalið
  • Ef fleiri en 6 göngugarpar skrá sig verður ráðinn auka göngufararstjóri sem þekkir svæðið eins og handabakið á sér og fer með í gönguferðirnar.  

Sama verð gildir fyrir alla. Pláss fyrir allt að 15 göngugarpa.

Skrá göngugarp

Fararstjórn

Óskar Þór Þráinsson

Óskar Þór Þráinsson

Upplýsingafræðingur, vanur fjallahlaupari og skáti með mikla reynslu af hlaupum. Hann hefur síðustu ár dvalið löngum stundum á fjallastígum í Sviss, meðal annars í skipulögðum göngu- og hlaupaferðum með skátahópum, og langar að kynna þetta skemmtilega leiksvæði fyrir íslenskum fjallahlaupurum.

Tómas G. Gíslason

Tómas G. Gíslason

Líffræðingur, vanur fjallahlaupari og fyrrverandi landsliðsmaður í áströlskum fótbolta. Hann hefur mikla reynslu af fjallabrölti og næmt auga fyrir náttúrunni, enda lærður náttúrulífsljósmyndari.

Saman hafa Óskar og Tómas brasað ýmislegt utanvega og innan og tryggja að allir í ferðinni upplifi öryggi og hafi gaman. Þeir fóru þessa ferð með hlaupahóp haustið 2026.

Verð 

225.000 kr. á mann í tvíbýli

Staðfestingargjald 65.000 kr. greiðist við skráningu. Ferðin er staðfest þegar lágmarksfjölda, 10 þátttakendum, er náð. Eftir það er staðfestingargjaldið óendurgreiðanlegt, en nafnabreyting er alltaf heimil.

Innifalið

  • Gisting í 5 nætur í tvíbýli á Hotel Victoria
  • Morgunverðarhlaðborð alla daga
  • Aðgangur að sundlaug, saunu og spa hótelsins
  • 3 hlaupadagar (4–6 tímar) + valkvætt fjallahlaup á frídegi
  • Skipulagðar gönguleiðir fyrir göngugarpa
  • Fararstjórn
  • Miðar í 3 kláfa, aðgangur að Blausee og strætó þangað og til baka
  • Sameiginlegur lokakvöldverður
  • Kynningarfundur og hittingur hópsins fyrir ferð
  • Ferðahandbók um Kandersteg og nágrenni
  • 360° myndband af ferðinni á YouTube

Ekki innifalið

  • Flug til og frá Sviss
  • Lest milli flugvallar og Kandersteg
  • Bílastæði við hótel
  • Máltíðir aðrar en morgunverður og lokakvöldverður
  • Afþreying á frídegi
  • Ferða- og fjallatryggingar
  • Síma- og gagnakostnaður
  • Annar ferðakostnaður og þjónusta sem ekki er tekin fram

Svona var stemningin í síðustu ferð

Þessi ferð var farin 2026 í svipaðri mynd, en sú ferð var einum hlaupadegi lengri. Hér eru myndbönd af ferðadögunum haustið 2026. Sjón er sögu ríkari:

Eftir ferðina færðu líka 360° myndband af ferðinni á YouTube. Sjá 360° Runs Iceland.

Gott að vita áður en þú bókar

Ítarleg ferðahandbók er send þátttakendum nokkrum vikum fyrir ferð. Hér er það helsta:

Ferðalagið

Flestir fljúga til Zürich, en Basel, Genf og Mílanó koma líka til greina. Frá Zürich-flugvelli tekur lestin rúmar tvær klukkustundir til Kandersteg. Sæktu SBB Mobile appið fyrir miða og verð.

Merktir stígar

Svissnesk nákvæmni nær líka upp á fjöll. Stígarnir eru litakóðaðir eftir erfiðleikastigi. Við förum aðallega eftir gulum göngustígum og að hluta inn á rauða fjallastíga en engar tæknilegar alpaleiðir.

Hæðin

Kandersteg er í 1.200 m hæð og leiðirnar fara í 1.500–2.200 m. Flestir finna lítið fyrir því, en sumir finna fyrir örlítið meiri mæði fyrstu dagana. Við byrjum rólega.

Fjallaskálarnir

Hluti af upplifuninni: kaffi, kökur, súpa og rösti á miðri leið. Hafðu nokkra CHF-seðla í hlaupavestinu, því kort virka ekki alltaf uppi á fjöllum.

Sími og net

Sviss er utan reikisvæðis EES og íslensk símafyrirtæki taka daggjald. Fararstjórar mæla með eSIM fyrir ferðina.

Trygging og öryggi

Við mælum með aðild að svissnesku flugbjörgunarsveitinni REGA (CHF 40). Kannaðu líka að ferðatryggingin þín nái yfir fjallahlaup. Fararstjórar fylgjast með veðurspá MeteoSwiss alla daga.

Myndir

Algengar spurningar

Hvenær er ferðin staðfest?

Þegar 10 þátttakendur hafa skráð sig og greitt staðfestingargjald. Við látum alla skráða vita um leið.

Þarf ég að vera hraður hlaupari?

Nei. Hópurinn fer saman á þægilegum hraða með góðum stoppum. Mikilvægara er að þola langa daga á fótum og löng niðurhlaup.

Get ég tekið með ferðafélaga sem hleypur ekki?

Já, svo sannarlega. Göngugarpar skrá sig sérstaklega og fá skipulagða gönguleið fyrir hvern dag. Sjá nánar hér.

Hvað ef ég get ekki farið eftir að ég skrái mig?

Staðfestingargjald er óendurgreiðanlegt eftir að ferðin er staðfest, en þú getur alltaf framselt plássið til annars með nafnabreytingu.

Hvaða búnað þarf ég?

Utanvegaskó, léttan vind- og regnjakka, hlýtt aukalag og hlaupavesti með vatni og nesti. Stafir eru góðir í löngum niðurleiðum. Taktu hlaupabúnaðinn með að heiman – úrval sérhæfðra hlaupavara er lítið í fjallaþorpinu. Búnaðarlisti fylgir ferðahandbókinni.

Hvernig er veðrið?

Hitastig í júní er yfirleitt mjög þægilegt í júní og hentar vel til hlaupa. Algengt hitastig í bænum á þessum tíma er á bilinu 18°-25° en lægra upp í tölunum. Hitastig getur þó verið allt frá 14°-29° eftir því hvernig veðurfarið þróast. Eins og Íslendingar þekkja getur fjallaveður breyst hratt. Oft er hlýtt niðri í dalnum en svalara í 2.000 m hæð, og skúrir geta komið snöggt. Fararstjórar aðlaga dagskrána að veðurspá hverju sinni.

Er hægt að fá sérferð fyrir hlaupahópinn minn?

Já, ferðina er hægt að aðlaga að minni eða stærri hópum. Hafðu samband á oskar@hlaupadagskra.is.

Komdu með til Kandersteg í júní 2027

Takmarkaður fjöldi plássa - 24 hlauparar og 15 göngugarpar.

Skrá mig í ferðina

Fyrirspurnir: oskar@hlaupadagskra.is
Ferðin fellur undir lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Tilskilin leyfi og tryggingar eiga við.